Sigríður Á. Andersen

Um Sigríði

Sigríður Ásthildur Andersen er fædd í Reykjavík 21. nóvember 1971. Eiginmaður hennar er Glúmur Jón Björnsson efnafræðingur. Þau eiga tvær dætur.

Foreldrar Sigríðar eru Brynhildur K. Andersen skrifstofumaður og Geir R. Andersen fyrrverandi blaðamaður. Bræður hennar eru Kristinn Andersen verkfræðingur og Ívar Andersen verslunarmaður.

Menntun

Embættispóf í lögfræði frá Háskóla Íslands 1999 og hdl. réttindi 2001.
Erasmus styrkþegi við Complutense háskólann í Madrid á Spáni 1997 til 1998.
Stúdent af eðlisfræðideild frá Menntaskólanum í Reykjavík 1991.
Sigríður hóf skólagöngu sína í Landakotsskóla og fór að honum loknum í Hagaskóla.
Sigríður lýkur innan skamms BA prófi í spænsku og viðskipta/hagfræði frá Háskóla Íslands.

Starfsferill 

Sigríður hefur starfað sem héraðsdómslögmaður hjá LEX lögmannsstofu frá árinu 2007. Sigríður starfaði áður sem lögfræðingur Verslunarráðs Íslands, síðar Viðskiptaráðs Íslands, frá 1999 til 2006 og fór þar meðal annars með framkvæmdastjórn Sænsk-íslenska og Spánsk-íslenska verslunarráðsins. Starfsnámi lauk hún hjá Lögmönnum Höfðabakka og Málflutningsstofu Sigurðar Georgssonar hrl. og með námi starfaði hún sem blaðamaður á DV hinu gamla. Með grunn- og menntaskólanámi starfaði Sigríður á auglýsingadeild DV og á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.

Störf í þágu Sjálfstæðisflokksins

Sigríður hefur starfað í Sjálfstæðisflokknum frá unga aldri.
Hún hefur verið varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá alþingiskosningunum 2007.
Sigríður var formaður félags sjálfstæðismanna í vestur- og miðbæ 2006-2009. Hún sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 2005 -2007 og sat í stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 2005-2009. Sigríður var kosin í kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninga 2006 og var umboðsmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður vegna alþingiskosninga 2003.
Sigríður sat í stjórn Heimdallar, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, 1996 til 1997 og var í skattahópi Heimdallar sem hélt upp á fyrsta Skattadaginn, árið 1995.

Þátttaka í þjóðmálaumræðu

Sigríður hefur verið fastur dálkahöfundur við ýmsa fjölmiðla undanfarin ár. Má þar nefna dálkinn Viðhorf í Blaðinu frá 2005 til 2007, Veröld sem væri… í Viðskiptablaðinu frá 2003 til 2005 og reglubundna Kjallara á DV, hinu gamla, frá 2000 til 2003. Þá flutti hún vikulega pistla í Íslandi í bítið, morgunsjónvarpi Stöðvar 2, árið 2001. Auk þess hafa birst eftir hana fjölmargar greinar í Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og ýmsum tímaritum.
Sigríður er einn af stofnendum og stjórnarmönnum Andríkis – útgáfufélags frá 1995.

Annað félags- og nefndastarf

Sigríður situr í hverfisráði miðborgar Reykjavíkur fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Sigríður er formaður Spánsk-íslenska viðskiptaráðsins og situr í stjórn Hispánica, félags spænskumælandi á Íslandi. Þá sat hún í siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa um sjö ára skeið og í kærunefnd lausafjárkaupalaga árið 2005. Á árunum 1999 – 2002 sat hún í stjórn ICEPRO, samstarfs um rafræn viðskipti og sat í nefnd viðskiptaráðherra um verklag varðandi skilarétt neytenda árið 2000. Þá var hún fulltrúi í ráðgjafanefnd EFTA árið 2005 og átti sæti í Dómstólaráði árin 2004 til 2009. Sigríður á ekki sæti í stjórnum einkahlutafélaga eða hlutafélaga.