Sigríður Á. Andersen

Eru allir bankar í Evrópu ríkisbankar?

júlí 26th, 2009

Mér hefur fundist með ólíkindum hversu mjög þeir sem eiga að gæta hagsmuna Íslands erlendis hafa lítið og illa haldið uppi málsvörnum þar, a.m.k. opinberlega. Ein málsvörn sem mér hefur fundist augljós, allt frá því í október, er sú að Landsbanki Íslands hafi verið einkabanki og í ljósi þess sé hæpið að íslenskur almenningur beri ábyrgð á mistökum í rekstri hans. Þetta sjónarmið hljóta Bretar og Hollendingar að geta skilið, sem og þær þjóðir þar sem einkarekstur í fjármálaheiminum þekkist.

Í Fréttablaðinu í gær birtist eftir mig grein um eina hlið Icesave málsins og hana má finna hér.