Sigríður Á. Andersen

Össur og breski Verkamannaflokkurinn

maí 8th, 2009

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra nýtti ekki færið sem hann fékk á leiðtogafundi NATO í vetur til að tala yfir hausamótunum á Gordon Brown forsætisráðherra Breta. Nú verður spennandi að sjá hvaða silkihanskameðferð breski sendiherrann hér á landi fær vegna rangra og meiðandi ummæla Browns um Ísland í breska þinginu í vikunni. Vonandi hefur það engin áhrif að Össur hefur verið félagi til lífstíðar í Breska verkamannaflokknum. Össur lýsti því yfir árið 2007 að hann greiddi samviskusamlega félagsgjöld í breska Verkamannaflokkinn og hefði gert frá námsárunum. Ætli hann taki enn þátt í að fjármagna flokk Gordons Browns?