Sigríður Á. Andersen

Prófkjörsreikningurinn 2006

apríl 22nd, 2009

Eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík haustið 2006 lagði stuðningsmannafélag mitt fram reikning baráttunnar eins og enn má sjá hér á vefnum. Þar var gerð grein fyrir heildarkostnaði og kostnaðarskiptingu vegna prófkjörsins og einnig fjölda og skiptingu styrkja frá fyrirtækjum og einstaklingum.

Eins og sjá má í þessum reikningi voru hæstu styrkirnir vel innan við 10% af heildarkostnaði við prófkjörið og allir innan þeirra marka (kr. 300.000) sem síðar voru leidd í lög um fjármál flokka og frambjóðenda. Stuðningsmannafélagið hafði einfaldlega þá reglu að óska ekki eftir hærri styrkjum en 300.000.

Áhugi fjölmiðla á þessum upplýsingum árið 2006 reyndist nær enginn.