Áfram í 5. sætinu - kærar þakkir
mars 15th, 2009
Eftir prófkjör okkar sjálfstæðismanna í Reykjavík í gær sit ég áfram í 5. sætinu í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Sjö þingmenn flokksins röðuðu sér í sjö efstu sætin í prófkjörinu. Það sýnir mikla samstöðu eða samúð sjálfstæðismanna með þingliði sínu eftir það sem á undan er gengið. Þingmennirnir fengu allir meirihluta talinna atkvæða, eða frá 51% til 84%. Flestir sem kusu í prófkjörinu hafa einfaldlega kosið flesta þingmennina.
Enginn nýr frambjóðandi nær yfir 50% atkvæða sem er fremur óvænt útkoma en til samanburðar fengu fjórir nýliðar yfir 60% atkvæða í prófkjörinu haustið 2006 og þá var þátttaka einnig mun meiri. Þátttaka í prófkjörinu nú var fremur dræm eða rúm 41%. Ef til vill sýnir þessi niðurstaða hvað þingmenn hafa mikið forskot ef aðdragandi prófkjörs er skammur og takmarkanir eru settar á kynningarefni. Uppskeran er lítil þátttaka og litlar breytingar í þingmannahópnum. Miðað við skoðanakannanir að undanförnu sest enginn nýr þingmaður úr Reykjavíkurkjördæmunum á þing fyrir flokkinn eftir kosningarnar 25. apríl. Verkefnið framundan er að breyta þeirri stöðu.
En þótt allir sitjandi þingmenn hafi fengið gott endurkjör verður vissulega endurnýjun að því leyti að Illugi Gunnarsson er nýr leiðtogi sjálfstæðismanna í Reykjavík. Kosning hans í 1. sætið er glæsileg og óska ég honum til hamingju með hana. Árangur Illuga og Bjarna Benediktssonar í Suðvesturkjördæmi markar tímamót í forystu Sjálfstæðisflokksins. Þeim fagna ég.
Ég þakka kærlega fyrir þann stuðning sem ég hlaut í prófkjörinu og stuðningsmönnum mínum fyrir frábært starf.