Færri og skýrari verkefni
mars 14th, 2009
Það blasir við okkur að fækka verkefnum ríkis og sveitarfélaga. Það er auðvitað alltaf æskilegt markmið að sýna sparsemi í rekstri hins opinbera. Nú er það hins vegar óhjákvæmilegt. Hin mikla útgjaldaaukning á síðustu árum gerði það að verkum að menn höfðu ekki borð fyrir báru þegar gaf á bátinn í haust.
Menn hafa lengi reynt að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að beita svokölluðum flötum niðurskurði. Útgjöldin hafa engu að síður aukist ár frá ári. Flatur niðurskurður er kannski þægileg leið fyrir stjórnmálamenn til að koma sér undan því að taka afstöðu til einstakra verkefna, af eða á. Nú verður ekki undan því vikist.
Þetta er meginefni greinar minnar í Fréttablaðinu í dag.