Góð þátttaka styrkir Sjálfstæðisflokkinn
mars 13th, 2009
Kosning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hófst í Valhöll í dag klukkan 12 í dag og stendur kosningin til klukkan 21 í kvöld. Á morgun, laugardag, er svo kosningu framhaldið á sjö stöðum í borginni frá klukkan 10 til klukkan 18. Hér má finna allar upplýsingar um kjörstaði.
Það er afar mikilvægt að þátttaka í prófkjörinu hér í höfuðborginni verði góð. Það væri afbragðs veganesti fyrir frambjóðendur flokksins í kosningabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar í næsta mánuði.
Sjálf sækist ég eftir stuðningi í eitt af 4 efstu sætunum.