Sigríður Á. Andersen

Byggðastofnun gerir Jón á Hóli að spákaupmanni

mars 13th, 2009

Þessi frétt Morgunblaðsins um ástandið á Byggðastofnun vekur áleitnar spurningar.

Í fyrsta lagi kemur á óvart að 75% af útlánum stofnunarinnar séu í erlendri mynt. Er stofnunin að lána Jóni á Hóli japönsk jen til að steikja vistvænar kleinur og klatta ofan í ferðamenn? Og Gunnu á Hofi svissneska franka til að virkja bæjarlækinn?

Það nær ekki nokkurri átt að ríkisstofnun sé að miðla erlendu lánsfé um landið og breyta lánþegum í sveitum landsins í spákaupmenn á gjaldeyrismarkaði. Undir því yfirskyni að efla byggðir landsins.

Í öðru lagi hefur þessi ævintýramennska á gjaldeyrismarkaði þau áhrif að eiginfjárhlutfall stofnunarinnar fellur með krónunni. Samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svara 8% af áhættugrunni. Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki (CAD-hlutfall) er hins vegar komið niður í 2,80%.

Byggðastofnun hefur raunar átt í vandræðum í mörg ár. Skemmst er að minnast þess að árið 2005, þegar eiginfjárhlutfall stofnunarinnar fór undir lögbundin mörk, skipaði þáverandi viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, stofnuninni engu að síður að halda útlánum áfram. Nú er sama staða komin upp. Hvað ætla menn að halda þessu lengi til streitu?