Kastljós um fjármál stjórnmálamanna
mars 12th, 2009
Í Kastljósinu í kvöld var fjallað um nýjar leiðbeinandi reglur Alþingis um fjármál alþingismanna. Reglurnar gera ráð fyrir að alþingismenn gefi upp tilteknar eignir sínar. Þá er gert ráð fyrir að alþingismenn megi ekki þiggja gjafir að verðmæti meira en kr. 50 þúsund. Fram kom hins vegar að ekki væri gert ráð fyrir að þingmenn gæfu upp skuldastöðu sína eða upplýsingar um eignatengsl maka sinna. Kastljósið ræddi við Ómar Kristmundsson stjórnsýslufræðing við Háskóla Íslands. Að hans mati er fullt tilefni til þess að kjörnir fulltrúar, sem og frambjóðendur, upplýsi um skuldastöðu sína, sérstaklega í erfiðu árferði eins og nú er.
Þessu er ég sammála. Ég tel að skuldastaða manna geti gert menn vanhæfa til að fjalla um tiltekin mál undir vissum kringumstæðum. Meiri hætta er auðvitað á að slíkar aðstæður skapist við erfiðar efnahagsaðstæður. Í þessu ljósi tók ég þá ákvörðun að upplýsa kjósendur í prófkjöri sjálfstæðisflokksins um eignir og skuldir mínar - og eiginmanns míns.
Nokkrir aðrir frambjóðendur fögnuðu þessu frumkvæði mínu og hétu að gera slíkt hið sama innan tíðar. Ég geri ekki nokkrar kröfur til þess að frambjóðendur eða stjórnmálamenn geri heimilisbókhald sitt opinbert sem með þeim hætti sem ég hef gert. Ég árétta að ég tel ekki að það eigi að setja lög um þessi efni og ekki einu sinni leiðbeinandi reglur. En maður hlýtur að velta því fyrir sér af hverju allir þeir stjórnmálamenn, og frambjóðendur, sem sífellt tala um mikilvægi þess að opinbera bókhald stjórnmálamanna, einhendi sér ekki bara í það að gera það sjálfir. Enn hefur ekkert bólað á bókhaldi þeirra frambjóðenda sem töluðu um að gera það.
Í kjölfar fréttatilkynningar minnar fékk ég einnig fjölmargar ábendingar um að VG hreyfingin birti á heimasíðu sinni upplýsingar um fjármál kjörinna fulltrúa, bæði alþingismanna og borgar- og sveitarstjórnarmanna. Sá galli er hins vegar á þeirri upplýsingagjöf, að mínu mati, að ekki gert grein fyrir skuldastöðu þessara einstaklinga eða eignatengslum maka. Án þeirra upplýsinga eru upplýsingar um “eignir” manna marklausar. Hvað á t.d. maður sem segist eiga 40 milljón króna hús en skuldar 60 milljónir? Hver er staða hans gagnvart lánveitanda?