Sigríður Á. Andersen

Zúúber í morgun

mars 10th, 2009

Ég var í skemmtilegu símaviðtali við morgunþáttinn Zúúber á FM 95,7 í morgun. Þáttastjórnendur, þau Svali, Gassi og Sigga Lund, höfðu verið að velta fyrir sér framboðsmálum mínum í ljósi þess að ég væri barnshafandi. Þeim fannst athyglivert að kona „komin á steypirinn“ (sem ég reyndar er ekki lengur) væri að gefa kost á sér til starfa á Alþingi.

Hér má hlusta á þetta spjall mitt við Zúúberfólkið.