Sigríður Á. Andersen

Föstudagspæling: Fjölmiðlamenn bjóða fram til vinstri

mars 6th, 2009

Þegar ég fylgdist með Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa og Björgu Evu Erlendsdóttur starfsmanni VG í Kastljósinu í kvöld varð mér hugsað til þess hve margir fréttamenn eru í stjórnmálum eða vilja taka þátt í þeim um þessar mundir. Sigmundur Ernir Rúnarsson fyrrverandi fréttastjóri tekur til dæmis þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hann er raunar lentur í erfiðleikum með að fylgja reglum Samfylkingarinnar um prentverk í prófkjöri en honum varð það á að prenta bækling í röngum lit.

Áður og fyrr var talið að bændur væru áhrifamestir starfsstétta á Alþingi og sveitarstjórnum. Nú er öldin önnur. Það situr til að mynda enginn bóndi á þingi eftir að Drífa Hjartardóttir þingmaður okkar sjálfstæðismanna lét af þingmennsku. Þeir eru hins vegar margir starfsbræður Sigmundar Ernis sem sitja þar, sækjast eftir því um þessar mundir eða hafa snúið aftur á fjölmiðlana.
Fjölmiðlamenn hafa áhrif og því hefur lengi verið haldið fram að stór hluti þeirra hneigist til vinstri í pólitík.

Ég skaut saman þessum lista yfir starfandi stjórnmálamenn og frambjóðendur í prófkjörunum núna í mars sem ég man eftir að hafi verið fjölmiðlamenn að aðalstarfi áður en þeir buðu fram.

Til hægri:
Árni Johnsen, Björn Bjarnason, Gísli Marteinn Baldursson, Gréta Ingþórsdóttir, Kjartan Magnússon , Óli Björn Kárason og Rósa Guðbjartsdóttir

Á miðjunni:
Björn Ingi Hrafnsson, Samúel Örn Erlingsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Til vinstri:
Björgvin G. Sigurðsson, Ellert B. Schram, Guðmundur Steingrímsson, Heimir Már Pétursson, Katrín Jakobsdóttir, Lúðvík Geirsson, Mörður Árnason, Oddný Sturludóttir, Ögmundur Jónasson, Ólína Þorvarðardóttir, Ómar Ragnarsson, Össur Skarphéðinsson, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Arnardóttir, Skúli Helgason, Stefán Jón Hafstein, Steingrímur J. Sigfússon og Þórunn Sveinbjörnsdóttir.

Vafalítið gleymi ég einhverjum, bæði til vinstri og hægri. En ætli þetta gefi einhverja mynd af stöðunni á fjölmiðlunum? Fjórðungur til hægri, tíund á miðjunni og nær tveir þriðju til vinstri. Eða ætli séu bara hægrimenn eftir á blöðunum og stöðvunum? Vinstrimennirnir allir farnir í pólitík…