Orsakir fjármálakreppunnar
mars 5th, 2009
Það hefur miklu púðri verið eytt í umræður um einkenni og afleiðingar fjármálakreppunnar. Menn furða sig eðlilega á þeim eignabólum sem springa nú um allan heim. Ekki er undrunin minni yfir því bruðli og óráðsíu sem þessar verðbólur gátu af sér. Í skjóli síhækkandi eignaverðs gátu menn slegið lán til að fjármagna ótrúlega dýr verkefni, jafnt fyrirtæki, einstaklingar sem hið opinbera. Minna hefur hins vegar farið fyrir umræðu um ástæður kreppunnar. Hvað hratt þessum verðbólum af stað?
Þess vegna var viðtal við Sigurgeir Örn Jónsson hagfræðing í Kastljósinu í gær kærkomið. Sigurgeir Örn starfaði áður fyrir Bank of America í New York. Ég hvet alla til að horfa á það hér. Sigurgeir Örn sagði meðal annars:
Að grunni til má segja sérstaklega með húsnæðislán og aðra markaði þá byggðu menn á endatryggingu seðlabanka. Menn byggðu á því að jú vissulega getur eignaverð lækkað en ef allt fer í hönk kemur seðlabankinn og bjargar öllu með því að lækka vexti og sprauta peningum inn í hagkerfið og í versta falli að veita bönkum lán til þrautarvara og tryggja innistæður. Þá velta menn því fyrir sér ef ég er innlánsþegi með pening sem ég ætla að leggja inn í banka að það skiptir engu máli hvað bankinn gerir við peninginn, ríkið borgar mér alltaf peninginn til baka. Þannig að ég tek ekki peninginn út úr bankanum á meðan ég treysti þessari ríkistryggingu. Þannig að bankarnir geta tekið miklu meiri áhættu en ef þessi ríkistrygging væri ekki til staðar.
Hér er kveðið skýrt að orði um orsakir þess sjúkdóms sem hrjáir hagkerfi heimsins. Bankar og önnur fjármálafyrirtæki nutu ekki aðeins innspýtingar ódýrs fjármagns úr seðlabönkum heldur einnig ábyrgðar ríkisins á innistæðum. Þessi ábyrgð leiddi til þess að bankar tóku óþarfa áhættu og innistæðueigendur voru andvaralausir um stöðu bankanna.
Það þarf að skera á þessi tengls ríkisins og fjármálafyrirtækja. Fjármálafyrirtæki eiga að standa á eigin fótum eins og önnur fyrirtæki verða að gera.
Ég skrifaði grein í Morgunblaðið í desember þar sem ég reifaði svipuð sjónarmið.