Hver á að skera úr um ábyrgð á Icesave?
mars 3rd, 2009
Í sérdeilis góðri grein eftir þá Stefán Má Stefánsson lagaprófessors og Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmann í Morgunblaðinu í dag svara þeir fráleitum málflutningi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra um ábyrgð íslenska ríkisins á innistæðum bankanna. Í greininni rekja þeir sjónarmið sem þeir hafa áður sett fram um forsendur og eðli tilskipunar ESB um innistæðutryggingasjóð.
Í hvaða liði eru stjórnvöld? – spyrja greinarhöfundar og skyldi engan undra. Utanríkisráðherra hefur viðrað sjónarmið ESB ríkjanna og Noregs til þessa máls og svo virðist sem hann hafi gert þau að sínum. Þessi sjónarmið lúta helst að því að málarekstur Íslendinga, þar sem á það yrði látið reyna hvort að íslenska ríkið beri ábyrgð á innistæðum umfram það sem tryggingasjóður innistæðna hefur bolmagn til, væri til þess fallinn að skekja fjármálahverfi Evrópu. Þessum sjónarmiðum finnst Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra boðlegt að tefla fram gegn hagsmunum Íslendinga. En eins og greinarhöfundar benda á eru þetta ekki lögfræðileg rök.
Það skýtur skökku við þegar íslensk stjórnvöld láti stjórnvöld annarra ríkja meta grundvöll t.d. málshöfðunar vegna þeirrar ábyrgðar sem krafist er að íslenska ríkið taki á sig vegna innistæðna íslenskra bankaútibúa erlendis. Íslenskum stjórnvöldum ber að leita allra leiða, þ.á m. fyrir dómstólum, til þess að vernda hagsmuni íslenskra skattgreiðenda. Ég get tekið undir hvert orð í þessari grein lögfræðinganna.