Auka aðgerðir ríkisstjórnarinnar innheimtukostnað skuldugra heimila?
febrúar 19th, 2009
Það fer ekki alltaf saman magn og gæði. Ríkisstjórnin virðist ætla að halda marga en heldur rýra blaðamannafundi. Einn fundurinn var um þá ætlun stjórnarinnar að láta fresta nauðungarsölum fram yfir kosningar. Þar kom einnig fram að fyrningartími krafna yrði styttur úr tíu árum í tvö. Minna var sagt um að hægt er að halda kröfum við aftur og aftur og styttri fyrningartími verður ekki til þess að menn losni undan kröfum sínum heldur til þess að kröfuhafar þurfa oftar að hefja innheimtuaðgerðir til að rjúfa fyrninguna. Og á hvers kostnað ætli þær innheimtuaðgerðir séu?
Í samræmi við þetta hefur ríkisstjórnin nú lagt fram frumvarp sem nú bíður fyrstu umræðu og breytir meðal annars ákvæðum gjaldþrotalaga. Er gert ráð fyrir að kröfur sem ekki fást greiddar við gjaldþrotaskipti fyrnist á 2 árum í stað 4, 10 eða 20 ára nú. Þetta breytir auðvitað engu um skuldastöðu hins gjaldþrota. Kostnaður við slit á fyrningu fellur hins vegar á skuldarann.