Tónlistarhúsið er ekki brýnast
febrúar 26th, 2009
Ég skrifaði nokkur orð í Fréttablaðið í dag um þá ákvörðun ríkisins og Reykjavíkurborgar að halda áfram byggingu tónlistarhússins við Reykjavíkurhöfn. Húsið átti að kosta 12 milljarða þegar framkvæmdir hófust. Nú þegar húsið er risið að mestu leyti er talið að það kosti 13 milljarða að ljúka framkvæmdum!
Ríkið og Reykjavíkurborg verða ekki aflögufær næstu árin samdráttar í efnahagslífinu. Tekjutap ríkisins er þegar komið fram með miklu falli í neyslusköttum. Sveitarfélögin munu sömuleiðis finna fyrir lægri útsvarstekjum er fram í sækir. Hvorki ríki né borg hafa efni á því að halda byggingu tónlistarhússins áfram. Samt er haldið áfram.
Rökin sem ríki og borg leggja helst fram til að réttlæta framhald framkvæmda við tónlistarhúsið er að það skapi störf þar til húsið verður opnað 2011. Fallist menn á þau rök að hið opinbera fari í atvinnuskapandi framkvæmdir eru menn þá alveg vissir um að hús á borð við tónlistarhúsið eigi að njóta þess? Hvað með skóla borgarinnar sem sumir eru enn á framkvæmdastigi eins og Sæmundarskóli og Norðlingaskóli?