Mikill og einlægur áhugi
febrúar 26th, 2009
Mig langar að þakka þeim stóra hópi sem sent hefur mér hlý orð vegna þeirrar ákvörðunar minnar að birta upplýsingar um eignir og skuldir okkar hjóna í gær. Eðlilega vakna ætíð einhverjar spurningar þegar upplýsingar af þessu tagi eru lagðar fram. Ein var sú hvort hlutir í einkahlutafélögum væru á listanum yfir eignir. Því er fljótsvarað. Við hjónin eigum enga hluti í einkahlutafélögum enda væru þeir þá tilgreindir á listanum. Önnur laut að setu í stjórnum einkahlutafélaga eða hlutafélaga. Eins og kemur einnig fram hér á síðunni á ég ekki sæti í stjórnum slíkra félaga. Eiginmaður minn hefur setið í einni slíkri stjórn undanfarið ár, hjá HS veitum hf. , áður Hitaveitu Suðurnesja hf. Að síðustu var spurt hvort ég væri ekki andvíg því að ríkið birti fjárhagslegar upplýsingar um einstaklinga eins og álagningarskráin er dæmi um. Jú, ég tel að menn eigi að hafa sjálfdæmi um hvort þeir birta slíkar persónulegar upplýsingar um sig. Við eigum ekki að láta ríkið taka af okkur öll ráð.