Sigríður Á. Andersen

Tæpitungulaust

febrúar 25th, 2009

Vegna þátttöku minnar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 13. - 14. mars 2009 hef ég ákveðið að birta yfirlit yfir eignir og skuldir okkar hjóna hér á vefnum. Við núverandi aðstæður í efnahagsmálum þjóðarinnar og vegna mikillar umræðu um fjárhagsleg tengsl og hagsmuni kjörinna fulltrúa þykir mér sjálfsagt að upplýsa kjósendur í Reykjavík um stöðu mína að þessu leyti um leið og ég óska eftir umboði þeirra til starfa á Alþingi.

Ég tek þó fram að ég tel að frambjóðendur eigi að hafa sjálfdæmi um hvort og hvernig þeir birti upplýsingar af þessu tagi. Ég er andvíg lagaboðum um persónuleg málefni af þessum toga. Þeir kjósendur sem telja þessar upplýsingar skipta máli geta tekið tillit til þess hvaða frambjóðendur leggja þær fram þegar þeir gera upp á milli frambjóðenda og flokka í prófkjörum og almennum kosningum.

Ég hef ákveðið að birta þessar persónulegu upplýsingar að þessu sinni en virði rétt þeirra sem gera það ekki.

Upplýsingarnar má finna á síðunni Um Sigríði.