Sigríður Á. Andersen

Uppsteytur á Alþingi

febrúar 23rd, 2009

Háværar kröfur hafa verið um að alþingismenn veiti ríkisstjórn aðhald og stimpli ekki með þrælslund frumvörp ríkisstjórnarinnar til samþykkis.  Nú hefur framsóknarmaðurinn Höskuldur Þórhallsson óskað eftir að hinkrað sé með seðlabankafrumvarpið þar til ný gögn berast, síðar í vikunni.  Loksins sjálfstæð hugsun í hópi þingmanna -en þá hentar skyndilega ekki að menn þar séu að þvælast fyrir framkvæmdavaldinu.