Tækifæri til endurnýjunar
febrúar 17th, 2009
Ég hef ákveðið að taka þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík í næsta mánuði. Ég óska eftir stuðningi í eitt af efstu sætunum. Flokksmenn hafa kallað eftir endurnýjun á framboðslistum flokksins um land allt. Með því að gefa kost á mér í eitt af efstu sætunum í höfuðborginni vil ég leggja mitt af mörkum í þeim efnum.

Þetta verður snörp og skemmtileg barátta. Mars verður sérlega viðburðaríkur hjá okkur fjölskyldunni. Fyrir utan prófkjör og ánægjulega endurfundi við sjálfstæðismenn af landinu öllu á landsfundi okkar, eigum við von á annarri dóttur á næstunni.